23. júlí,

2026

Gott að hafa í huga: Þjónusta í ágúst

Í ágúst verða nokkrar breytingar á vöruafgreiðslu og útkeyrslu Banana vegna frídags verslunarmanna og viðburða í miðborg Reykjavíkur.

Frídagur verslunarmanna

Mánudagurinn 3. ágúst 

Söludeild Banana verður lokuð mánudaginn 3. ágúst vegna frídags verslunarmanna. 

Vefpantanir sem berast um verslunarmannahelgina verða afhentar þriðjudaginn 4. ágúst

 

Gleðigangan  

Laugardagurinn 8. ágúst 

Vegna Gleðigöngunnar, sem fram fer laugardaginn 8. ágúst í tilefni Hinsegin daga, verður engin útkeyrsla í boði í miðborg Reykjavíkur þann dag. 

Götulokanir taka gildi snemma um morguninn og hafa áhrif á aðgengi að miðborginni, sem gerir bílstjórum Banana ókleift að sinna útkeyrslu á svæðinu. 

Viðskiptavinir geta hins vegar sótt pantanir í vöruhús okkar að Korngörðum 1 til kl. 12:00. Til þess þarf að leggja inn pöntun fyrir kl. 11:00 samdægurs

 

Reykjavíkurmaraþon og Menningarnótt 

Laugardagurinn 23. ágúst 

Vegna Reykjavíkurmaraþons og Menningarnætur laugardaginn 23. ágúst verður einnig engin útkeyrsla í boði þann dag. 

Viðskiptavinir geta hins vegar sótt pantanir í vöruhús okkar að Korngörðum 1 til kl. 12:00. Til þess þarf að leggja inn pöntun fyrir kl. 11:00 samdægurs

Fyrirspurnir 

Ef spurningar vakna er velkomið að hafa samband við söludeild Banana á bananar@bananar.is eða í síma 525 0100

Veldu fyrirtæki