Vinnustaðurinn
Öflugur mannauður
Bananar er rótgróið fyrirtæki sem hefur tekið miklum stakkaskiptum og áherslubreytingum á síðustu misserum. Þessar breytingar hefðu ekki verið mögulegar án samvinnu allra í okkar samheldna starfsmannahópi.
Fyrirtækið hefur á að skipa fjölbreyttum og fjölþjóðlegum starfsmannahópi en hjá okkur starfa að jafnaði 105 starfsmenn, með fjölbreyttan bakgrunn og reynslu.
Allt frá innkaupum til dreifingar leggur starfsfólk Banana sig fram við að koma hágæða ávöxtum og grænmeti til verslana og fyrirtækja um land allt.
Markmið Banana er að vera eftirsóknarverður vinnustaður, skipaður vel þjálfuðu, stoltu og ánægðu starfsfólki. Við leggjum ríka áherslu á jákvæða vinnustaðamenningu sem einkennist af trausti, virðingu og samvinnu heilt yfir.
Öll laus störf hjá Bönunum eru auglýst í gegnum alfred.is

Gildin okkar
Gildi fyrirtækisins spila stóran sess í áherslum og stefnu mannauðsmála og eru kjarninn í öllu sem við framkvæmum, hugarfari okkar og samskiptum á vinnustaðnum, hvort sem um ræðir samstarfsfélaga, viðskiptavini eða birgja.
- Heiðarleiki
- Hamingja
- Hugrekki
- Heilbrigði

Jafnréttis- og jafnlaunastefna
Jafnlauna- og jafnréttisstefnu Banana er ætlað að tryggja öllum starfsmönnum sem starfa hjá fyrirtækinu jöfn tækifæri eins og kveðið er á í lögum og stjórnarskrá um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Jafnréttis- og jafnlaunstefna er órjúfanlegur hluti að launastefnu fyrirtækisins
Markmið stefnunnar er að stuðla að því að allt starfsfólk hafi jöfn tækifæri og koma í veg fyrir hvers konar mismunun.
Eftirfarandi markmið skulu höfð að leiðarljósi:
- Bananar er vinnustaður þar sem allir óháð kyni eiga jafna möguleika til starfa
- Að allir óháð kyni, njóti sömu kjara fyrir sömu eða jafn verðmæt störf
- Bananar er vinnustaður þar sem starfsfólk getur samræmt vinnu og einkalíf
- Bananar gætir þess að allir starfsmenn hafi sömu tækifæri til starfsþróunar, náms og fræðslu
- Bananar líða ekki kynbundið ofbeldi, kynbundið áreitni, kynferðisleg áreitni, einelti eða annað ofbeldi
Bananar hafa innleitt jafnlaunakerfi sem nær til allra starfsmanna til að framfylgja settum stefnumiðum. Framkvæmdastjóri ber ábyrgð á jafnlaunakerfinu og að þeim lagalegum kröfum og öðrum kröfum sem tengjast jafnlaunakerfinu sé framfylgt. Mannauðsstjóri er ábyrgur fyrir innleiðingu og viðhaldi kerfisins eins og kveðið er á í lögum og er í samræmi við jafnlaunastaðalinn ÍST 85.
Til að uppfylla skilyrði laganna og stefnunnar skuldbinda Bananar sig til að skjalfesta, innleiða, viðhalda og bæta stöðugt stjórnun jafnlaunakerfisins í samræmi við kröfur staðalsins og ákvarða hvernig kröfur hans verða uppfylltar.
Ákveðið verklag er viðhaft við launaákvarðanir innan fyrirtækisins sem hefur það að markmiði að tryggja heildaryfirsýn yfir laun, stöðugar umbætur á launakerfinu, eftirlit með kynbundnum launamun og viðbrögð sem felast í því að leiðrétta kynbundinn launamun tafarlaust komi hann í ljós.
Stjórn setur fram jafnlaunamarkmið og rýnir jafnlaunakerfið árlega. Jafnlaunamarkmið skulu endurskoðuð út frá niðurstöðum launagreiningar. Stjórnendur skulu einnig skuldbinda sig til að viðhalda stöðugum umbótum, eftirliti og bregðast við óútskýrðum launamun og þeim frávikum sem koma fram við rýni á jafnlaunakerfinu.
Stefnan var samþykkt og útgefin 27. mars 2024
Myndagallerí




