22. maí,
2025
Nýtt vöruhúsakerfi
23.-26. maí verður innleiðing á nýju vöruhúsakerfi Banana
Við viljum vekja athygli á því að um helgina, nánar tiltekið frá föstudagskvöldi til mánudags, munum við hjá Bönunum ráðast í innleiðingu á nýju vöruhúsakerfi.
Þetta er liður í áframhaldandi umbótum og stefnumörkun okkar til að bæta rekstur og þjónustu við viðskiptavini.
Á meðan innleiðingin fer fram gæti komið upp tímabundin truflun í þjónustu, meðal annars í afhendingu pantana og svörun fyrirspurna.
Við biðjumst fyrirfram velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að hafa í för með sér og þökkum fyrir skilning ykkar og þolinmæði. Ef þið hafið einhverjar spurningar og/eða þurfið að heyra í okkur um helgina er best að senda tölvupóst á netfangið bananar@bananar.is.
Við vonumst til að þessi breyting skili sér í enn betri þjónustu til lengri tíma litið og hlökkum til áframhaldandi farsæls samstarfs.
