3. nóvember,
2026
Bananar á Stóreldhúsinu 2026
Við hlökkum til að taka á móti viðskiptavinum og öðrum gestum á básnum okkar.
Bananar taka þátt í Stóreldhúsinu 2026 sem fram fer í Laugardalshöll dagana 5.-6. nóvember.
Stóreldhúsið er vettvangur fyrir fagfólk í veitinga- og stóreldhúsageiranum þar sem gefst gott tækifæri til að kynna sér vörur, þjónustu og nýjungar á markaðnum.
Á bás Banana munum við kynna þjónustuna okkar og stafrænar lausnir sem auðvelda viðskiptavinum dagleg innkaup. Sýningin verður opin frá kl. 12:00–18:00 báða dagana.
Við hvetjum alla gesti sýningarinnar til að líta við á básnum okkar.
