11. nóvember,

2026

Tímabundnar breytingar á pöntunum og afhendingum 13.-14. nóvember

Vegna uppfærslu á viðskiptakerfi Banana verða tímabundnar breytingar á pöntunum og vöruafhendingum dagana 13.-14. nóvember.

Helstu breytingar

  • Vefverslun: Verður lokuð frá kl. 13:00 föstudaginn 13. nóvember til kl. 13:00 laugardaginn 14. nóvember
  • Vöruafhending á laugardag: Pantanir til afhendingar laugardaginn 14. nóvember þurfa að berast fyrir kl. 13:00 á föstudag
  • Sótt í vöruhús: Ekki verður hægt að panta vörur til að sækja í vöruhús Banana að Korngörðum 1 eftir kl. 13:00 á föstudag eða á laugardaginn 14. nóvember
  • Afgreiðsla pantana: Pantanir sem berast eftir kl. 13:00 á föstudag verða afgreiddar mánudaginn 16. nóvember
  • Opnunartími söludeildar: Söludeild Banana verður opin samkvæmt venju laugardaginn 14. nóvember, kl. 9:00–11:00

Við hvetjum viðskiptavini til að ganga frá pöntunum með góðum fyrirvara til að tryggja afhendingu samkvæmt áætlun.

Á meðan vefverslunin er lokuð má senda fyrirspurnir á bananar@bananar.is.

Uppfærslan er liður í að bæta þjónustu okkar til framtíðar. Við biðjumst velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda og þökkum fyrir sýndan skilning.

Veldu fyrirtæki