15. október,
2026
Bananar hljóta viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar annað árið í röð
Bananar hlutu viðurkenningu Jafnvægisvogar FKA annað árið í röð fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Alls hlutu 163 þátttakendur viðurkenningu í ár.
Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) sem hefur það að markmiði að stuðla að auknu jafnvægi kynja í stjórnunarstöðum. Viðurkenningin er veitt fyrirtækjum og stofnunum sem hafa náð að minnsta kosti 40/60 kynjahlutfalli í efsta stjórnendalagi.
Losum um hnútinn
Yfirskrift átaks Jafnvægisvogarinnar í ár er „Losum um hnútinn“ þar sem vakin er athygli á mikilvægi þess að rjúfa gamalgróin mynstur og skapa aukin tækifæri til fjölbreyttari forystu.
Við trúum því að fjölbreytt sjónarmið og öflug liðsheild stuðli að betri ákvarðanatöku, sterkari vinnustaðamenningu og betri árangri.
Við erum stolt af viðurkenningunni, sem er okkur jafnframt hvatning til að halda áfram að stuðla að jafnrétti og jöfnum tækifærum innan fyrirtækisins.
